Ég heiti Dagmar Heiða Reynisdóttir og útskrifaðist úr hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands árið 2004. Á lokaárinu mínu skrifaði ég BS-ritgerðina „Líkamsrækt á meðgöngu“ og út frá því kviknaði áhuginn fyrir því að þjálfa óléttar konur og í framhaldinu nýbakaðar mæður.

Þjálfararéttindi og bakgrunnur:

  • Hjúkrunarfræði úr Háskóla Íslands
  • Einkaþjálfaraskóli World Class
  • Þolfimikennararéttindi frá Hreyfingu
  • Hóptíma kennararéttindi frá Fusion Fitness Acadamy
  • TRX þjálfararéttindi
  • Ketilbjöllu þjálfararéttindi
  • Foam Flex þjálfararéttindi
  • Body Attack og Body Jam kennararéttindi frá Les Mills
  • Skyndihjálparnámskeið Rauðakross Íslands
  • BTLS – Basic Trauma Life Support – námskeið í fyrstu meðferð slasaðra
  • ACLS – Advaced Cardiac Life Support – námskeið í sérhæfðri endurlífgun

Líkamsræktar ráðstefnur:

  • Les Mills Life Stokkhólmur 2015
  • Les Mills Life London 2016
  • SCW Fitness Mania Boston 2017
  • SCW Fitness Mania Atlanta 2018

Persónulegur bakgrunnur:

  • Æfði samkvæmisdans í 12 ár
  • Æfði Tae Kwon Do og tók svarta beltið
  • Þolfimi og ýmis konar líkamsrækt og námskeið
  • Hlaup en mín helsta ástríða í dag eru löng utanvega- og fjallahlaup
  • Bootcamp

Líkamsrækt er stór þáttur í lífi margra kvenna og aldrei eins mikilvægt að halda áfram að styrkja sig og hreyfa eins og á meðgöngu og eftir fæðingu barns. Ég er sjálf þriggja barna móðir og var með mikla grindargliðnun á mínum meðgöngum en hef fundið leiðir til að æfa fram á síðasta dag.

Fullfrísk hóf göngu sína árið 2007 og hef ég hef kennt meðgöngu- og mömmuleikfimi frá þeim tíma. Hjá Fullfrísk eru konur á öllum stigum meðgöngu og mömmur með misgömul börn og misvanar hreyfingu en allar geta tekið þátt með því að hlusta á líkamann og fara eftir ráðleggingum þjálfara varðandi mismunandi stig æfinga. Mikið er lagt upp úr því að hafa létt og skemmtilegt andrúmsloft í tímum og að gera skemmtilega hluti saman utan tíma svo sem að fara út að borða sama.